Tota Lee Perfect
Eithvað Annað
15.09.2006 15:08:52 / tota

nyjustu fréttir

vá hvað það er heví langt síðan ég hef bloggað seinast. Af þeim sökum ákvað ég að skrifa núna þótt að ég er viss um að ég er að skrifa fyrir daufum augum. blogg blómaskeið mitt er liðið gott fólk. Það hefur engin áhuga lengur á að lesa um neitt sem viðkemur þórhildi og hennar einmanna líf þar sem svartnættið er endalaust og martraðir og raunveruleiki renna saman í eitt

alveg róleg sko hahaha :) anyways er það helst í fréttum að ég var í Ítalíu í sumar sem var GEÐVEIKT....ég náði meira að segja að verða skotin í strák og kynnast heilum vinahópi sem var rokkhljómsveit sem hét dusty heads. og þessi strákur sem ég var skotin í var í þeirri hljómsveit (kemur á óvart :)) já og við vorum voða skotin og það var geggjað gaman og hann syndi mér alla mílanó og svoleiðis. Annars er af því að segja að það var yfirþyrmandi heitt þarna úti, ég var þarna þegar hitabylgjan var og hitinn var komin upp í 40 stig og það var engin loftkæling heima hjá sólrúnu...ekki einu sinni vifta, sem við keyptum síðan á endanum. En stundum var manni orðið óglatt af hitanum. svo þegar við vorum að fara heim misstum við af flugvélinni því ég var full og sofnaði og sólrún hafði líka sofna og við sváfum yfir okkur...viljiði pæla í lúðum. en við fórum þá bara næstu nótt í staðin en þar af leiðandi þurftum við að bíða í 13 tíma á stanstedt og ég náði að sofna á gólfinu þar sem var eiginlega ekkert af fólki en svo vaknaði ég við að fólk og töskur voru að rekast í lappirnar á mér. Þá var fólk byrjað að´tékka sig inn þarna og það var geggjað mikið af fólki þarna

svo kom ég hei og flutti í nyja husið og hitti Evu nyju stjúpsystir mína og krakkana henna og kærastan hennar en nú eru þau farin og sólrún fór seinasta sunnudag og það er heví einmannalegt hérna núna, alein í stóra húsinu !!

en ég er semsagt byrjuð í iðnskólanum á listnámsbraut sm er mjög gaman ég er bara búin að vera svo slöpp síðustu vikuna þannig það er soldið erftitt að vakna á morgnana

en nú held ég að ég sé búin að skrifa andskoti nóg...sérstaklega miðað við það að það á engin eftir að lesa þetta sem ég þekki ...mér leiðist bara svo óbyrmilega mikið að ég ákvað að blogga....pælið í því HAH !

ok bæ bæ


» 3 hafa sagt sína skoðun

26.05.2006 00:35:56 / tota

Summertime and a new camera :)

jæja loksins er komið að því :) aðeins tveir dagar þangað til ég fæ mína langþráðu myndavél sem mamma og sigurjón eru að kaupa fyrir mig út á Flórída. Ég get ekki beðið. mér finnst þetta hafa verið lengsta vika sem ég hef upplifað hehe 

Hún kemur sér akkurat vel þar sem ég er búin að eyða síðustu krónunum af kortinu mínu í tvo flugmiða til Ítalíu jeiii :) Ég fer núna eftir tvær vikur og verð í heilan mánuð mmm mmm það verður æði :)

Ég fer fysrst til Sólrúnar í Mílano svo ætlum við að fara að roadtrippa um ítalíu :) Fyrst förum við til Flórenz svo til Rómar og endum á Feneyjum :) ohh ég get ekki beðið eftir að komast af þessu landi og öllu sem því fylgir í smá stund. Ég ætla akkurat ekki að breyta símanum mínum í reikning þannig ég get ekki hringt og það getur enginn hringt í mig heldur, nema þeir sem ég gef kannski síman hjá Sólrúnu sem verða mjög fáir og verður bara í neyðartilvikum.

Ætli þessi mánuður verði ekki eina sumarið sem ég fæ því mér synist sumarið hafa gleymt því að koma við hérna á íslandi þetta árið

Annars finn ég að úaf einhverjum ástæðum er ég eithvað pirruð og fúl þessa stundina þannig ég ætla að fara að sofa og hrista þetta úr mér ábyggilega bara þreytt :)

ó já ég er ein af þeim sem breytist í morðóðan raðmorðingja á morgnana og kvöldin ef ég er orðin mjög þreytt :)

þannig ég er farin :)

 Bæ


» 1 hafa sagt sína skoðun

26.04.2006 14:25:24 / tota

ikke noget

-

Ég hef verið alveg yfirmáta löt að skrifa inná elsku bloggið mitt. Ástæðan er jú sú að mér finnst alltaf vera jafn lítið að gerast hjá mér og nú er fólk næstum hætt að skoða síðuna mína :cry: en nú verður breyting þar á bæ ég ætla að reyna að standa mig betur við þessa tölvudagbók mína :)

Ég fór á Curtis Adams syninguna um daginn (Dansandi Töframaðurinn) með mömmu og Sigurjóni því mamma hafði fengið einhverja miða í vinnuni frítt. Ég hélt að þetta yrði allt öðruvísi, þetta var t.d. miklu minna en ég hélt að þetta væri og þetta var meira svona dans heldur en töfrabrögð þannig séð. Reyndar voru töfrabrögðinn sem hann gerði voða flott en sum ekki eins flott. t.d í eitt skiptið var hann með svona bréf rós sem han ætlaði að byrja að láta svífa sem hún gerði en svo byrjaði hún að rugga svona fram og til baka eins og hún væri í bandi úr loftinu sem hún ábyggilega var. og fullt svoleiðis,eitt skipti var hann í einhverjum kassa svo kom voða reykur og varð dimmt og svo þegar það varð bjart aftur var stelpa komin í kassann eins og þau hefðu ekki bara skipt þennan tíma meðan allt var í reyk og dimmt...fullt eithvað svona :)

Jæja nu er Sólrún systir mín góða farin aftur til síns heima..því miður í hennar heimi er 25 stiga hiti og sól meðan hjá okkur er 5 stiga hiti og snjór. Nú er ég aftur orðin ein og yfirgefin hérna í ltilu íbúðinni okkar í grafarvoginum...ég er búin að reyna múta fólki til þess að koma og lina þessar einmannalegu tilfinningar án árangurs. Þar sem hvorki vinir né fjölskylda vilja koma og vera hjá mér er ég byrjuð að reyna að múti fólki út á götu bara en fæstir vilja koma því ég á víst ekki nógan pening handa þeim, djöfulsins peningagræðgi alltaf hreint. hvað varð um manngæsku og ást til náungans ..ætti það ekki að vera andskotans nóg.

Og svona á öðrum nótum vil ég benda fólki á að í kjölfar þessa þá er ég orðin ástsjúk og ég er búin að finna sjálfa mig að því að verða skotin í nyjum strák í hverri viku en þar sem það eru ekki allir eins örvæntigafullir og ég hefur heppnin ekki alveg verið mér hliðstæð....hvað er eiginlega að fólki !?!?!?!

Nú nenni ég ekki að skrifa meira handa ykkur ég er farinn upp í rúm á miðjum degi til að glápa á sjónvarpið og fara svo í vinnuna kl 6 til 10 og koma svo heim og halda áfram að glápa á sjónvarpið......já enn einn dagur til spillis og hvað ætliði að gera í því HA ? ekki nokkurn skapaðan hlut veriði bless :)

Þórhildur ..........æ ég veit ekki


» 1 hafa sagt sína skoðun

06.04.2006 14:05:14 / tota

Ég er greinilega ekki nátturubarn

Já ég er greinilega ekki eins mikið náttúrubarn og í tengslum við móður Jörð eins og ég hef haldið undanfarin ár Málið er nebbla það að í gær tók ég þátt í apparati nokkru sem kallast \"swet\" eða sviti eins og það er kallað á góðri íslensku fyrir ykkur sem ekki vita hvað það er skal ég útskyra það fyrir ykkur.Þetta er gömul indjánaaðferð til að fæðast upp á nýtt og til að komast í tengls við forfeður sína og anda úr andaheiminum Það snyst eiginlega út á það að þú átt að svitna eins mikið og þú getur eða meira en það helst bara láta líða yfir þig því þá fæðistu víst bara upp á nytt.

 það eru Tveir hommar sem búa í elliðarárdalnum sem eru með þetta og þeir eru voða spiritual eithvað. Þetta byrjar á því að það er kveikt risa bál og það eru hitaðir bara venjulegir steinar á bálinu og á meðan því stendur stöndum við við bálið og annar hommin var að spá fyrir okkur og segja okkur hvaða litur við værum og svona. Minn litur var greinilega violet en liturinn minn núna er rauður en ég er samt alltaf fjólublá og ég miðla því sem ég veit, ég miðla öllu sem ég kann og læri. og ég var víst komin þarna til að segja skilið við fortíðina og til að byrja upp á nytt það gamla er úrelt hjá mér og það er komin tími til að byrja upp á nytt. Svo fékk ég einhver rauð sólgleraugu til að sjá heimin betur eins og ég ætti að gera eða eithvað.

 Svo þegar við vorum búinn að standa við bálið í svona einn og hálfan tíma fórum við inn og dönsuðum í svona klukkutíma bara til að losa um stressið og feimnina eða eithvað svo fórum við í sundföt og fórum inn í svona frekar lítið tjald sem þú gast ekki einu sinni staðið upp í sem er súper einangrað, það kemst enginn hiti út né inn. Okkur var svo raðað upp, stelpur öðum megin og strákar hinum megin og við vorum 15 eða eithvað þannig þetta var frekar troðið hehe.

 Svo byrjuðu hommarnir að ná í steinanna frá bálinu sem voru orðnir rauðglóandi með skóflum og koma með þá inn í tjaldið. Þeir náðu í svona 20 svona steina og það var orðið ískyggilega heitt þarna inni og ég vissi að það ætti bara eftir að verða margfallt heitara þegar þeir lokuðu tjaldinu. og í hvert skipti sem hann kom með stein var kallað \"velkominn\" eins hátt og við gátum eftir smá stund var ég byrjuð að kalla \"óvelkominn\" Svo auðvitað byrjaði ég að finna fyrir smá innilokunarkennd því mér fannst þetta soldið óþægilegt þessi hiti og hvað það var dimmt þarna inni og ég komst ekki út ég ætti bara gjöra svo vel að svitna til dauða eða eithvað og fyrir þá sem þekkja mig fer ég aldrei í gufu og ef ég geri það er það í svona 3 mínutur og svo er ég farinn. og inni í tjaldinu er svona 100 gráðu hiti hann sagði það meira að segja við okkur. Ok svo loksins lokaði hann tjaldinu og byrjaði að ausa vatni á steinanna í þokkabót þannig það varð enþá heitara svona eins og þegar það er ausað vatni í sauna. allavega og ég fann að mér fannst eins og ég væri að brenna í andlitinu og á öxlunum og það var vont að anda því loftið var svo geðveikt heitt, svo áttum við að kyrja með honum einhverjar fornar indijána bænir. fyrsta lotan var verst því þá var maður óvanastur.

 Eftir fyrsta sönginn eða kyrjuna sem er kallað lota var opnað út aftur og það var eins og það hefði verið hellt yfir mig fötu af vatni ég var svo ógeðslega sveitt, það dropaði af hökunni og bakinu og hárið á mér var rennandi, svo fengum við svona hreinsun þar sem hann hreinsaði okkur af alskonar óþarfa drasli sem er að angra okkur í okkar daglega lífi. Svo var tjaldinu lokað aftur og þá var aftur ausað og alltaf aðeins heitara en í þetta skipti voru kyrjaðir tveir songvar þannig við vorum alltaf aðeins lengur og lengur í hverri lotu. ég var byrjuð að verða hálf rugluð þarna inni þá og fannst bara eins og það væri að líða yfir mig eða eithvað og var bara komin í eithvað hugarástand og ég var ekki sú eina Lindu og Margréti byrjuðu að verða óglatt af hitanum. Svo þegar við sögðum það við gæjana sogðu þeir þá bara að þá værum við greinilega að flæma einhverja púka frá okkur og það væri allt í lagi að sofna því þá fæðumst við aftur því við værum eins og í móðurkviði. Ég var nú ekki alveg á leiðinni að fara kaupa það þannig ég hélt mér vakandi en ég er viss um að ég sofnaði í smá stund því ég er viss um að mig dreymdi eithvað þarna inni. Svo voru sumir farnir að sjá einhverja liti og eithvað og hann sagði okkur hvað þessir litir þyddu og eithvað. ég sá rauðan og gulan eins og flestir en ég man ekki hvað það þyddi því ég var eiginlega soldið svona útúr heiminum eða eithvað. Þetta var bara í annari lotunni og við fórum í fimm allt í allt, sem urðu alltaf lengri og lengri.

 svo loksins þegar þetta var búið hlupum við út og það var skítkallt og rok en mér hefur aldrei liðið eins vel með það á ævinni, þá fórum við í svona potta en samt ekki potta heldur svona kar sem var annað hvort með köldu vatni eða volgu. ég fór í þann sem var með volgu. En af því ég stóð svo hratt upp því ég var að flyta mér svo fékk ég alveg dúndrandi höfuðverk.

 Svo fórum við inn og fengum svona orkudrykk sem var fullur af kalsími og svona, Eithvað banana og ananas boozt eithvað sem var reynda heví gott. Svo fengum við að borða og svona einhverja grænmetis súpu og brauð og og fullt af áleggi og svona því þegar maður kemur út er maður heví svangur en ég hafði samt ekki mikla matarlyst en ég borðaði samt eithvað. svo sátumst við aftur í stofuna og fengum popp og nátturulakrís til að bæta upp saltið sem við misstum

Ég frétti það líka í gær að fólk sem hefur verið í neyslu en hefur hætt kemur þarna oft sumir einu sinni í viku. Ég skil það vel þegar ég var komin út fannst mér alveg eins og ég væri uppdópuð og fannst það alveg þangað til að ég kom heim og beint upp í rúm Þótt ég eigi aldrei eftir að gera þetta aftur hefði ég ekki viljað sleppa þessari lífsreynslu og ég hefði orðið frekar fúl út í sjálfan mig ef ég hefði farið út í miðju kafi og ekki klárað þetta eins og hvarlaði að mér mjööög oft og fleirum

Já og by the way þá er ég orðin stutthærð og ekki á flottan hátt ég fór í klippingu og gæjin eyðilagði hárið á mér

 Þórhildur indjánakona kveður

bæjó


» 3 hafa sagt sína skoðun

16.03.2006 18:39:09 / tota

Big Plans

Jæja gott fólk þá er ég Loksins búin að finna út hvað ég ætla að gera við mína dyrmætu framtíð. Eins og flestir veta sem þekkja mig vel þá ætla ég að verða Ljósmyndari þegar ég er orðin stór en ég hef ekki getað fundið neitt í skólum hér á landi sem hefur það sem ég er að leita að nema í listaháskólanum sem maður þarf klárlega að vera búin að klára menntaskóla og þekkja nokkra í skólanefndinni til í að komast inn í og mig langar ekki að eyða tíma mínum í eithvað framhaldskólanám að læra eithvað allt annað en ljósmyndun heldur einhverja fjölmiðlafræði eða eithvað svoleiðis þegar ég ætla að verða tískuljósmyndari. Eeen svo hafði ég veður af því að út í Mílanó í skólanum þar sem hún heittelskaða systir mín stundar nám sitt væri hægt að læra ljósmyndun á þess að vera búin með framhaldskólanám.

Þannig ég fór upp í Lingó og talaði við konuna þar til að sjá hvort það væri eithvað til í þessu og hún sagði að það gæti vel verið því námskerfið er svo mismunandi milli landa. Eftir miklar pælingar og sjálfskoðun fundum við út að það sem hentaði mér best væri hugsanlega skóli sem kallast University of the arts í London sem er mjög virtur og stór skóli í Englandi. en þar sem ég er ekki búin að klára allt framhaldskólanám þarf ég að byggja upp smá grunn til þess að ég eigi auðveldara með að komast´inn í skólann. svo nú þarf ég að safna fullt af upplýsingum um hvað ég hef fram á að færa sem er nú ekki ykja mikið en allt skiptir máli t.d að ég var í myndlist´og leiklist í Borgarholtsskóla og ég var á iðnhönnunarbraut í iðnskólanum í Hafnarfirði og að ég hef tekið námskeið í Ljósmyndum sem ég fékk diplóma fyrir

 En þar sem hún var ekki viss um að þetta dygði er ég kannski að fara núna 6 maí gott fólk á 6 vikna námskeið í þessum skóla til þess að búa til portfoliuna mína sem ætti að vera nóg til að syna fram á hæfileika mína á þessu sviði. Í framhaldi af þessu fer ég svo í tveggja ára nám í þessum sama skóla á braut sem heitir Fashion styling and photography þar sem ég mun læra tískuljósmyndun og stíliseringu líka sem er nauðsynlegt ef maður ætlar að verða tískuljósmyndari svo þegar ég er búin að því þá get ég bætt við mig einu ári og fengið BA gráðu á þessu sviði eða tveim árum og fengið master sem ég mun ábyggilega gera því það er klárlega miklu betra. Þegar þessu er Lokið er ég semsagt orðin útskrifuð úr masters námi sem Tískuljósmyndari og Stílisti líka.......what about them apples hah?

ég er samt ekki viss hvort ég fari núna 6 maí því það er soldið stuttur fyrirvari heldur fari semsagt bara á næsta ári og safni svolítlum pening og svoleiðis fyrst þótt ég væri meira en til í að gera þetta bara strax það er í raun ekkert sem heldur í mig hérna heima lengur en hitt er aðeins skynsamlegra er þaggi ?

En já langaði bara aðeins að deila þessu með ykkur.....Og kannski fá að vita hvað ykkur finnst nú um þetta allt að ég skuli nú bara flytja af landi brott frá ykkur öllum ha ?

já ok bless í bili Þórhildur Framakona !!


» 4 hafa sagt sína skoðun

13.03.2006 00:40:43 / tota

nú er komið að því

 

Jæja nú er víst komið að því að henni Þórhildi er bara hent úr hreiðrinu henni til mikillar gremju !

Já svona eru mál að vexti að hún móðir mín og Sigurjón ætla að flytja saman eithvert með honum Sigurjóni kærastanum sínum. Ég má koma með en mig langar það ekkert sérstaklega þar sem þau eru búin að vera að skoða eithvað upp í Álftanesi og eithvað svoleiðis plús svo eru þau hundleiðileg saman, alltaf í sleik og eithvað svoleiðis vibbadæmi  hehe, Þannig ég og Linda erum að pæla í að fara að leigja eithvað saman en ef það gengur ekki upp er samt herbergi fyrir mig hjá þeim.

Það sem truflar mig samt mest við þetta allt saman er að ef við flytjum og seljum íbúðina hér þyðir það að við þyrftum ábyggilega að lóa kettinum og það vil ég ekki fyrir alla muni.

ég fékk þennan kött þegar ég var 7 ára og skírði hann í höfuðið á mér og allt ég tala við hann og hann talar við mig og ég get ekki farið að sofa án þess að hafa hann því ég er svo hræðilega myrkfælinn æææ ég vil bara ekki að hann fari því hún er mjög hress miðað við aldur og gæti alveg lifað í mörg ár í viðbót plús svo þykir mér bara sjúklega vænt um hann bara alveg eins og fjölskyldu meðlim eða eithvað

Skil bara ekki hvernig mamma getur verið svona tilfinningalaus um þetta svo vill hún ekki taka hana með í nyja húsið því  sigurjón  vill ekki hafa kött og þá er það bara gott og blessað

en ég er hætt að kvarta og kveina

en það er ekkert annað að gerast hjá mér þessa dagana þannig þetta er komið nóg í bili

Þórildur sjálfsvokunar púki

bæ bæ


» 2 hafa sagt sína skoðun

01.03.2006 01:16:54 / tota

HVAR ERU AFMÆLIS PAKKARNIR MÍNIR !!!!!!!!!

Ég átti afmæli í gær og eyddi aleigunni í geðveik stígvél sem ég veit ekki í hverju ég á að vera í við......Hvað segiði um það...HA????

og fyrir þá sem gleymdu afmælinu mínu (þið vitið hver þið eruð) eða hringduð ekki til að óska prinsessuni til hamingju með afmælið.....ég myndi sofa með annað augað opið ef ég væri þið eða koma með glæsilega afmælisgjöf sem fyrst !!!

kveðja Vatnsmelónuhöfuðið


» 2 hafa sagt sína skoðun

16.02.2006 19:16:16 / tota

To Love or NOT to Love !!!

Hef nú ekki frá miklu að segja frá en mig langaði samt að henda einhverju hérna inn því mér leiðist og ég er tölvunörd í dag og ætla að hanga í tölvunni og horfa á sjónvarpið það sem eftir er dags ...eða kvöld. skiptir engu. þetta rennur allt saman í eitt þegar maður er tölvunörd. Svo ætla ég að fara snemma að sofa og mæta í vinnuna í fyrramálið hress og skemmtileg og skjóta af mér 5 aura bröndurum í gríð og erg og reyna við sæta sjúkraflutningarmenn sem eru að koma með eina konuna í vinnuni sem datt.

Á aðeins dypri nótum er ég búin að vera pæla soldið í hugtakinu ástarsorg síðustu daga. það virðist sem allir séu í ástarsorg um þessar mundir, (nema ég hehehe suckers!)... en já semsagt virðist það vera að koma í tísku eða eithvað.

Ég hef fylgst með mismunandi fólki í ástarsorg og ég hef komist að þeirri niðurstöðu að ástarsorg er í rauinni ekki til, nema í smástund restin gerir manneskjan sem heldur að hún sé í ástarsorg. það heitir "þráhyggjuÖfund" þetta hendir oft fólk sem er ekkert sérstaklega ánægt með hvar það er statt í lífinu eða bara sjálfan sig yfir höfuð, þetta fólk verður oft ástfangið af fólki sem er tiltölulega ánægt með sig og sína og hefur nóg fyrir stafni. hefur áhugamál sem það stundar af kappi eða er alltaf að gera einhverja nyja og spennandi hluti svona t.d. Fólkið sem síðan á sér ekki síðan jafn mikið að gera hefur meiri þörf fyrir að eyða tíma sínum með hinum aðilanum heldur en hann hefur fyrir iðjuleysingjan. Þarna kemur öfundin inn í málið! Iðjuleysinginn er öfundsjúkur út í athafnarmannin. því hann hefur gert meira við líf sitt hingað til heldur en iðjuleysinginn.

Svo hætta þau saman. Hver haldiði að sé i meiri svokallaðari "ástarsorg".....já það var rétt. Auðvitað iðjuleysinginn því hann vill enþá vera partur eða eiga annarar manneskju líf því hans eigið gerir hann ekki hamingjusaman. Þetta getur leytt til þess að iðjuleysingin getur orðið verulega afbryðissamur, örvæntingafullur,blindur og gert sig að algeru fíbli meðan athafnamaðurinn heldur áfram því hann er ánægður með sitt og sína og hefur alls kyns hluti til að dreifa huganum. svo er ég með alls kyns fleiri kenningar um þetta sem ég nenni eiginlega ekki að skrifa núna en ef þið hafið einhverjar spurningar endilega hafiði bara samband.....samt ekki ástarsamband hehehe

Bottom Line: Þið ráðið því nákvæmlega sjálf hversu lengi ykkur líður illa eftir sambands slit. þið verðið bara að virkilega einbeita ykkur og syna staðfestu......og ekki tapa coolinu ( hringja og biðja um annað tækifæri eða eithvað svoleiðis eða taka einhvern skít..það er bara glatað)  því það gerir iðjuleysinginn.

Mundu bara af hverju þið hættuð saman til að byrja með. ekki gleyma því. skrifaðu það niður og hafðu miðan með þér og skoðaðu hann í hvert skipti sem þú ætla að vera aumingji og hringja eða eithvað

take care...Þórhildur cupid LoveDoctor 8) ( Athafnarkona )


» 5 hafa sagt sína skoðun

15.02.2006 18:32:42 / tota

Glatað!!!

Af hverju gaf mér enginn blóm á Valentínusardaginn.........

ekki það að mig langaði rosa í blóm...

það hefði samt verið gaman að fá blóm...eða kost....eða bara eithvað

Ég kenni ykkur um þetta ! Aldrei getur neinn hugsað til greyið Þórhildar !!!


» 5 hafa sagt sína skoðun

08.02.2006 02:13:43 / tota

Endirinn nálgast !!!

Jæja það lítur út fyrir að ég eigi ekki eftir að lifa til að sjá börnin mín vaxa úr grasi...ef ég næ þá að eignast börn það er að segja !

já mikið rétt gott fólk...heimurinn er að fara til fjandans. Ef ég dey ekki úr fuglaflensu eða of mikilli mengun. þá á ég örugglega eftir að láta lífið í hryðjuverkaárásum frá brjáluðum sádi aröbum sem taka ekki létt á smá skoti í sinn garð. Hvað er eiginlega að þessu liði !!! það eru til aðrar leiðir til að syna réttlæti heldur en með ofbeldi og mannsdrápum. Ég myndi nú ekki kalla mig fordómafulla manneskju en ég fann sjálfa mig að því að velta fyrir mér af hverju við útrýmdum ekki bara öllu þessu fólki upp til hópa. Hverslags trú er það sem hefur ekki leitt til annars en ofbeldis á bæði mannkyninu og konum og ...já öllu nema karlmönnum. í nafni múslims trúar hafa þeir hafið heilagt stríð. Ætli það hafi verið það sem múhameð spámaður hafi verið með í huga þegar hann bar út boðskap sinn. Alveg örugglega ekki. Málið er að þetta er að mínu mati ekki trúin eða neitt þess háttar. þetta er siðspilling sem er inrætt í þessar karlrembur frá blautu barnsbeini af bældum mæðrum sem eru skíthræddar við eignmenn sína. og þetta alast þau upp við.

 ÆÆÆ ég veit það ekki getur vel verið að ég sé farin að bulla eithvað núna en ég er allaveg stórhneyksluð á þessu öllu saman og líka skíthrædd. Hvað veit maður nema þau komi hingað líka og fremji einhverja hryðjuverkaárás í kringlunni eða eithvað. Við erum svo lítið og varnarlaust land sem ætti í rauninni ekkert að vera að rífa neinn kjaft og líta stórt á okkur

Ef ég dey ekki úr einhverju ofangreindu á örugglega eftir að skella á eithvað nátturu fyrirbæri sem þurrkar okkur út í heilu lagi, eins og flóðbylgja eða jarðskjálfti, eldgos eða eithvað þvíumlíkt. Já eða það nyjasta að hiti jarðar hækkar og jöklar bráðna og eyða öllu salti í hafinu og hækkar yfirborðið sem gerir það að verkum að við sökkvum og eithvað fleira eins og í myndinni the day after tomorrow

já ég gæti líka dáið úr þessari magapínu sem er búin að vera að hrjá mig í tvo daga. Hef ekki hugmynd hvað þetta er. Þurfti að fara fyrr heim ú vinnuni í dag því ég gat ekki rétt úr mér sem gerði það að verkum að mér var orðið´illt í bakinu og maganum, gat ekki einu sinni krosslagt fæturnar eða staðið upp almennilega. ég þurfti að lyfta fætinum með höndunum til að setja hann yfir hinn hehehe.

En já gott gólk    

The End Is Nigh !! Endirinn nálgast. gerið ráðstafanir !! :S og byrjið að ganga með grímur svo þið smitist ekki af fuglaflensunni eða hettusótt sem virðist vera í tísku í dag

Takk fyrir og góða nótt. og munið eftir "Gerum Þórhildi ríka" sjóðnum. styðjum gott málefni...en já ok bæ nú er ég farin BLESS !!! 


» 2 hafa sagt sína skoðun

01.02.2006 23:17:08 / tota

Gefið mér pening !!!!

Hafiði einhvern tíman lent í því að þegar þið farið niður í bæ gjörsamlega peningalaus sjáiði allt sem ykkur langar í í hverri einustu búð liggur við. En svo þegar þið eigið pening finnið ekki baun !
þetta kom fyrir mig í dag. um dagin fór ég í bæin með Lindu og við þræddum búðirnar og ég sá eithvað sem mig langaði í í öllum búðunum en svo í dag á útborgunardeginum mínum ætlaði ég að fara og finna mér eithvað ofur töff og cool...en vitiði hvað ég sá ekki RASSGAT.
Kannski pælir maður bara allt of mikið í þessu þegar maður á pening. Hvort að þetta sé of dyrt og eithvað annað sem þú þarft að borga eða eithvað og hvort maður eigi þá pening út allan mánuðinn. Ég er reyndar með frekar dyran fatasmekk. þegar ég kem´inn búð ramba ég beint á það dyrasta í búðinni.´T.d sá ég geggjað flottan kjól í dead búðinni áðan en auðvitað kostaði hann 14.900. typist ég. ÉG ÞOLI EKKI AÐ VERA FÁTÆK !!!:evil:
ég var fædd til að vera rík og ég heimta að fá fæðingarrétt minn og hana nú
Þannig ef einhverjum langar að gefa peninga í "gerum Þórhildi ríka" sjóðinn endilega hafið samband við mig, minnsta mál í heimi að koma því í verk. Ekki vera feimin gott fólk

Annars er ekkert merkilegt að gerast í lífi mínu þessa dagana, og ég syng eins og sá góðkunni tónlistamaður..in tomorrow i see no promise, and yesterday was like today :lol:. ef þið skiljið hvað ég á við. þegar allir dagar verða einhvern vegin eins. ég held við höfum öll upplifað það einhvern tíman á lífsleiðinni.

En jæja. Ég á sjóðheitt. stefnumót við sjónvarpið mitt ;)
.....Þannig ég kveð að sinni !!!! ..and in case i dont see ya. good morning, good evening and goodnight. bæ bæ


» 3 hafa sagt sína skoðun

13.01.2006 16:43:11 / tota

2005 Annáll Þórhildar !!!

Jæja 2005 annállin minn!! þar sem allir eru að þessu verð ég víst að reyna líka :)

kemur samt örugglega ekki í réttri röð og ég á örugglega eftir að gleyma helmingnum

en látum okkur nu sjá

Janúar: mmm Björg og litli bróðir minn eiga afmæli. gerðist nokkuð eithvað meira....hmm held ekki. jú Litla sæta stelpan hennar Beggu fæddist. og ég byrjaði að vinna á Skógarbæ

Febrúar: Ég prinsessan sjálf átti afmæli og varð tvítug og loksins tekin í alvöru fullorðinna tölu

Mars. Held að ekkert sniðugt hafi gerst þar nema kannski að Linda vinkona átti afmæli

Apríl: Allt í plati, Fyrsti Apríl

Maí: Linda flutti út til Arhus í Danmörku. og ég varð voða einmanna. og maría tók sig saman í andlitinu

Júní: ég fór út í heimsókn til Lindu og við fórum á Hróaskeldu. Ótrúlega gaman. pabbi greindist með krabbamein

Júlí: Ég kom heim frá Danmörku. ótrúlega brún og fín og mjög fátæk. Pabbi fór upp á spítala.

Ágúst: Linda kom heim frá Danmörku og ég reyndi að hætta að reykja og mér var gefin bíll hehe :)

September: Ég og Siggi hættum saman eftir tveggja ára samband. Sólrún flutti til Mílanó til að fara í skóla. og Sandra litla átti afmæli 15 ára

Október: Bjarki og Keli urðu samtals 50 ára. Bjarki 3ja og keli 47. Airwaves tónleikahátíðin byrjaði með látum og var rosa gaman. og ég byrjaði bloggið mitt, uppgötvaði msn og varð óforbetranlegur tölvunörd

Nóvember: White stripes og Sigurrós tónleikarnir. Siggi byrjaði með nyrri stelpu. og pabbi átti afmæli.

Desember: Jólin og áramótin. Ég eyddi fullt af peningum. Fékk fullt af fallegum gjöfum og góðum mat. og komst áfallalaust í gegnum áramótin svona til tilbreytingar

Vá hvað tímin er fljótur að líða. mér finnst eins og allt þetta sé bara nýbúið að gerast.Samt gerðist ekkert mikið merkilegt á árinu hægðir og lægðir eins og hjá flestum en ég ætla að breyta því þetta ár. Ég ætla að gera fullt skemmtilegt.

Áramótaheitið mitt er : Ekki láta heimskulega hluti eða fólk hafa áhrif á mig !! 

Þar hafiði það. ef ég gleymdi einhverju. endilega látið mig vita


» 7 hafa sagt sína skoðun

11.01.2006 13:38:09 / tota

Skrifið undir !!

src="">www.deiglan.com/askorun

Ég held það sé komið nóg af vitleysunni sem D.V skrifar um.

Þetta er ekki fréttamennska. Þetta er skáldskapur sem á ekki heima á stóru fréttablaði !!!


» 1 hafa sagt sína skoðun

06.01.2006 15:27:28 / tota

jæja jæja !!!

jæja sökum skammdegis þunglyndis, erfiðleika við að koma sér framm úr rúminu kl 5 á daginn og skorts á lífi hef ég því miður ekki haft tíma til að skrifa hérna eithvað handa ykkur
En semsagt þá eru jólin búin og áramótin líka og ég held ég hafi aldrei upplifað eins bitur jól og þessi. og áramótin voru ekkert betri. ég er ótrúlega glöð að þetta er allt búið og kemur ekki aftur fyrr en eftir eitt ár. það er besta jólagjöfin til mín frá heiminum hehe nei nei látum ekki svartsýnið fara með okkur í gönur gott fólk
En já þá eru jólin loks búin og ég fékk ekki margar gjafir en ég fékk eithvað. Ég fékk geðveika Carhartt úlpu frá pabba og Helgu enda valdi ég hana sjálf. svo fékk ég 3 bækur (þótt það sé á bannlista á jólalistanum) veronika ákveður að deyja og í fylgd með fullorðnum eftir steinunni ólínu og einhverja snyrtibók), 2 boli, 2 ilmvötn og 2 geisladiska (líka á bannlista) þar á meðal nýja Madonnu diskinn sem er hreint ekki slæmur, svo fékk ég risa baðhandklæði og shower gel og body lotion frá vinnuni.....já þá held ég að það sé bara komið
Annars er ótrúlega lítið og mikið að frétta af mér. það er bara ekkert lítið sem ég man eftir núna og það mikla er of mikið til að ég nenni að skrifa það núna. nema kannski að ég er búin að fá mér permanet og það er......................já.....mjög spes hehehe ég er eins og bandarísk breiðholtsmamma hehehe. og ég er loksins orðin happily single og hef gefið karlkyns spítalafæði upp á bátin því já þeir eru allir spítala fæði og þá meina ég geðveikraspítala heheh
ég er að fara á tónleika í kvöld með einhverju liði...mínus og brainpolice, hjálmum og einhverjum fleiri en ég veit ekki hvort ég nenni því þeir byrja kl 6 og kl er 3 núna svo er ég að fara á aðra tónleika með nátturu hópnum til styrktar nátturu ísland og þar koma fram Björk, Sigurrós. Damien Rise, Damon Albarn og margir fleiri fleiri
en nú nenni ég ekki að skrifa meira og ég biðst innilegrar afsökunar á þessu bloggi þar sem að mínu mati er þetta örugglega eitt leiðilegsta blogg seinni tíma. Lofa að það verður betri næst hehe :)
Bæ Bæ og Gleðilegt Nýtt ár og takk fyrir öll þau gömlu bæó

» 1 hafa sagt sína skoðun

30.11.2005 00:11:31 / tota

i´m back

jæja þá er ég loksins komin aftur að blogga hérna. ég er búin að vera soldið löt við það undanfarið plús ég var líka að reyna að draga úr tölvunotkun minni þar sem hún var að fara úr böndum á tímabili. þetta var orðið það slæmt að ég fór ekkert út heilu dgagan hékk bara heima og hékk í tölvunni frá því ég vaknaði og þangað til ég fór að sofa aftur. Þar af leiðandi hafði ég ekkert skemmtilegt að blogga um. en nú hef ég eithvað smotterí að tala um ekkert spes svosem :)

jú það er nefnilega mál með vexti að það er alveg ágætt að vera svona sæt og skemmtileg eins og ég hef alltaf talið sjálfan mig vera 8) mér var nebbla boðið á sigurrós tónleikana alveg óvænt síðasta sunnudag af strák sem ég þekki ekkert sérstaklega mikið en við höfum hist svona nokkrum sinnum á djamminu og svona, hann er ljósmyndari og svo alger 101 gaur eithvað. Ég vissi ekki einu sinni að þeir væru fyrr en María vinkona hringdi í mig og grátbað mig um að skutla henni því hún hafði reddað sér á tónleikana. Ég gerði það með semingi þótt ég nennti því engan vegin en svo á leiðinni hringir þessi strákur í mig og spyr mig hvort ég vilji ekki koma með honum á þá því hann geti komið okkur á gestalistan og ég segi auðvitað já ég væri alveg til í það. ok svo sæki ég maríu svo hann. svo þegar við komum þangað vill hann endilega fara á undan okkur meðan við leggjum bílnum svo komum við að inngangnum þá er hann að tala við einhvern gaur þar en fer svo út og tekur mig með sér þarna bakdyramegin og byrjar að bulla í dyraverðinum þar að hann sé frá morgunblaðinu og ég sé aðstoðarmaður hans og hann þurfi að komast inn og fá backstagepassa líka...ekkert mál þeir féllu fyrir þessu öllu eftir að hann hafði bullað í smá stund..þurfti ekki einu sinni að syna skilríki eða neitt. mér fannst þetta soldið fyndið. En tónleikarnir voru frábærir, hefðu samt verið betri ef ég hefði bara ekki verið svona rosalega þreytt. samt skrítið það var fólk sem var bara lagst á gólfið og farið að sofa eða eithvað. kannski fengu þau bara svona mikla slökunartilfinningu yfir þessari tónlist :S ég veit það barasta ekki.

En nú ætla ég að fara að sofa og hætta í bili...góða nótt ætla að gera heiðalega tilraun að snúa sólarhringnum aftur á rétta kjöl


» 65 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2